Mjög Rakagefandi og Róandi Serum er létt vatnsgel með háum styrk (23%) rakagefandi innihaldsefna, svo sem ectoin, trehalose og polyglutamic acid, sem veita húðinni ríkulegan raka og hafa róandi áhrif. Ectoin verndar frumur og hefur bólgueyðandi eiginleika, trehalose kemur í veg fyrir að húðin þorni og polyglutamic acid veitir henni mikinn raka og sléttir hana. Regluleg notkun serumsins veitir djúpan raka, róar húðina og sléttir hana, ásamt því að draga úr þurrki og ertingu.
Helstu innihaldsefni:
Ectoin: verndar frumur og hefur bólgueyðandi eiginleika, auk þess að vera einstaklega áhrifaríkt og langvarandi rakagefandi efni. Það er meðal annars notað í meðferðum við ofnæmishúðbólgu, ofnæmisvörum og augndropum.
Trehalose: veitir húðinni ríkulegan raka og hjálpar til við að koma í veg fyrir þurrk og ertingu.
Polyglutamic acid (PGA): hefur öfluga rakabindandi eiginleika og getur bundið meira vatn en hýalúrónsýra. Það veitir húðinni djúpan raka og sléttir hana.
Notkun
Berðu serumið á hreina húð á andliti, hálsi og bringusvæði að morgni eða kvöldi. Nuddaðu því varlega inn í húðina. Forðastu augnsvæðið.